| Theódór 的个人资料Heimasíða Tedda og Guðbj...照片日志列表 | 帮助 |
|
2008/1/11 Komin til SvíþjóðarGleðilegt nýtt ár!
Jæja, núna loksins kominn með almennilega nettengingu, tók bara 5 vikur hjá Svenson, hægt og rólega að komast inní sænska kerfið!
Guðbjörg og María Sara sáttar við nýtt líf í nýju landi, meðgangan gengur vel, áætlaður keisari í lok febrúar, María Sara byrjuð í leikskólanum. Kunnum mjög vel við okkur í nýja húsinu, enda með bestu nágranna í heim þ.e. Kidda/Níní & fjölskyldu, sem tóku frábærlega á móti okkur!
Ég byrjaði að vinna í vikunnu, kann mjög vel við mig, allir rosalega almennilegir og virðast skilja "sænskuna" mína, sem ég bara trúi varla
Háskólasjúkrahúsið hérna í Lundi er mjög flott, auðvitað allt miklu meira og stærra en heima á Fróni, strax búinn að læra fullt!
Verður ekki lengra í bili, kíkið endilega á síðuna hennar Maríu Söru til að sjá nýjar myndir....
Kveðja
Teddi
2007/1/2 Gleðilegt nýtt ár...Blessuð öll og gleðilegt nýtt ár...
Verið frekar latur síðustu mánuði við að blogga, finnst MSN ekki ganga alveg nógu vel, búinn að gera margar tilraunir sem yfirleitt klikka!
Hafið þið átt í vandræðum?
Annars brjálað að gera í vinnunni, svo gerir maður varla annað en skanna blöðin m.t.t. slysa þegar maður er í fríi, til að átta sig á hvernig ástandið verði svo þegar maður kemur aftur í vinnuna, sjúkt ekki satt!!! Talandi um að vera kominn með vinnuna á heilann...
María Sara blómastrar, búin að fara til Þýskalands og Danmerkur, byrjuð að ganga um allt með stuðningi og bablar útí eitt, alltaf síbrosandi!
Guðbjörg er að byrja að vinna á BMT við Hringbraut, rosaspennt...
Lofa að blogga meira, ef þetta gegnur núna.... 2006/8/2 Á leiðinni í ævintýralandið...Afsakið hvað það er langt síðan ég hef bloggað.... ég er bara alltof upptekinn við að gera ekki neitt í sumarfríinu
Loksins frábært veður hérna...
Erum annars öll á leiðinni til útlanda, ætlum til Þýskalands í miðaldabæinn Rothenburg, auk þess sem við ætlum að tékka aðeins á Munchen! Var þarna í gamla daga, í þýskuskóla, lærið ekki mikla þýsku, en lærði hinsvegar loksins að drekka bjór og hef gert talsvert af því síðan
Rosalega flottur bær, alveg eins og að ferðast með tímavél að fara þangað, yfirleitt frábært veður, róleg og rómantísk stemning!
María Sara alltaf að læra nýja hluti, alveg að byrja að skríða að ég held, eins gott að klára ferðalagið sem allra fyrst, áður en hún fer á stað, nokkuð ofvirk og mjög forvitin, skrautlegir mánuðir framundan án efa....
2006/7/17 NetleysiBlessuð öll og afsakið hvað maður hefur verið latur við að blogga... vorum loksins að ganga frá því að fá símann tengdan í íbúðina, netið ætti að komast fljótlega í gang...
Annars búið að vera nóg um að vera...
MR-reunion... mikið fjör, rosalega gaman að hitta alla gömlu félagana...
Steggjun Davíðs og brúðkaup í kjölfarið... ennþá meira fjör, dansað framá nótt
Steggjun Hannesar, brúðkaup eftir tvær vikur, ennþá með marbletti eftir magnaðan paintball dag...
Flutt inní íbúðina, loksins, geðveit notalegt, erum að koma okkur fyrir í rólegheitum, loksins eins og maður sé fluttur í bæinn...
María Sara, bara stækkar og stækkar, næstum hætt að passa í vagninn sinn, þurfum að fara að fá grind utan um leikteppið, ansi virk, finnst voðalega gaman að naga nýja stofuborðið, held að rólegu dagarnir með henni séu á enda! :-)
Set fljótlega inn myndir kveðja... Teddi 2006/6/17 María Sara skírð í dagFrábær dagur í dag.... María Sara loksins skírð.... Fengum frábærar móttökur hjá Systrunum í Stykkishólmi en þar fór athöfnin fram að viðstöddum nánustu fjölskyldu og séra Jakob skírði. Mjög hátíðlegt en afslappað andrúmsloft... sú litla stóð sig eins og hetja... og virtist bara mjög sátt við alla athyglina... sló alveg í gegn!
Á mjög miklar rætur í Stykkishómi og hjá systrunum, var þar í pössun sem barn og vann á spítalanum í 3 sumur
2006/6/8 Hótel TengdamammaJá, þá erum við bara flutt Suður eftir 3 ár á Akureyri... ekki alveg búinn að ná þessu ennþá... hvað þá að vera í sumarfríi og fæðingarorlofi þar til í september. Ekki alveg þessi týpa sem kann að vera í fríi og gera mest lítið...
Íbúðin ennþá óíbúðarhæf, en erum samt langt frá því að vera á götunni, búum nefnilega hjá Tengdó 2 hæðum fyrir ofan íbúðina okkar. Alltaf gott að búa á Hótel Tengdamömmu...
Eitthvað gekk mér samt illa að koma mér í gang á daginn niðri í íbúð, áttaði mig svo á því að auðvitað vantaði bara Sýn, þannig að ef þið eruð án HM eða bara fáið ekki að horfa á keppnina heima hjá ykkur af því að Skjárinn tók uppá einhverjum Stelpumánuði öll kvöld í júní bara til að valda sundrung á Íslenskum heimilum, ÞÁ ERUÐ ÞIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN!
Hverjum dettur í hug að dusta rykið af þáttum eins og Berverly Hills "nr.eitthvað" og Melrose Place
Nokkuð tryggt að ég verð þar öllum stundum að "vinna" í íbúðinni.... næstu vikur! 2006/5/28 Síðasta helgin á AkureyriJæja, nú er bara komið að þessu... allt komið í kassa, keyrum Suður á þriðjudaginn!
Guðbjörg í stresskasti með hálsbólgu, ekki góð blanda
Íbúðin þokast í rétta átt, verið að klára rafmagnið núna... einhver seinkun á að við fáum parketið, vonum bara að þetta klárist sem fyrst í sumar, helst í júní...
María Sara algjör perla, hefur ekki hugmynd um öll lætin í kringum sig, bara brosir út í heiminn og kominn rosalega fyndinn hlátur... Mamma og Pabbi í heimsókn hérna fyrir Norða núna, sú litla alveg búin að bræða þau..
María Sara fékk fullt af flottum fötum frá pabba sínum sem er nýkominn frá Boston, hún fékk líka stóra leikfangakisu sem hún er ekki alveg búinn að fatta hvað hún á að gera við, sjá mynd - svipurinn segir allt!
BostonHeil og sæl !
Kominn frá Boston, frábært ráðstefna í Svæfingarlækningum á vegum Harvard, en ansi strembin... þetta var eiginlega eins og að fara til Mekka en fyrst svæfinginn fór fram þarna um 1850 og ég fór að skoða salinn þar sem allt byrjaði á stærsta sjúkrahúsi Boston
Greinilega margt breyst, skurðlæknir og svæfingarlæknir í sínu fínasta pússi, ekki alveg búið að þróa sótthreinsuð vinnubrögð, merkilegt þó, æxli á hálsi var fjarlægt og sjúklingurinn útskrifaðist... 3 vikum síðar
Mikið Evrópskt yfirbragð á Boston, frábær matur og bjór, en frekar súrt að vera þarna aleinn, Guðbjörg kemur pottþétt með næst... ætti að geta dundað sér eitthvað í búðum
Hafði á tilfinningunni að söguleg atvik hefðu gerst á hverju horni þarna og sennilega var það rétt hjá mér, upphaf sjálfstæðisbaráttunnar, uppfinningar í læknisfræði , arkitektúr o.s.frv. Gekk uppað hnjám útum allt, fór meðal annars á upprunalega Cheers pöbbinn, fyrirmynd þessa í þáttunum...
Heimsótti Tedda frænda og fjölskyldu sem er í skurðsérnámi skammt frá Boston og gisti hjá þeim eina nótt, alveg frábært að hitta alla fjölskylduna, hápunktur ferðarinnar! (Sjá myndir á Barnalandi) 2006/4/25 Nóg að geraFínir páskar í Reykjavík, gaman að hitta fjölskylduna og vinina, hinsvegar ekki mikið frí, vorum á fullu að vinna í íbúðinni og loksins er maður farinn að sjá einhverjar framfarir! Byrjað að setja upp eldhúsinnréttinguna, búið að flota gólfin, alveg að koma að flísalagningu og byrjuð að mála... Hver veit kannski að við náum að flytja inní íbúðina fljótlega eftir að við komum Suður strax í byrjun júní (Erum byrjuð að pakka!)
Alveg nóg að gera í vinnunni, er að reyna að ganga frá alltof mörgum lausum endum hérna fyrir Norðan, vona að mér takist að klára eitthvað...
Öll næsta vika fer í að kenna upprifjun í ACLS á FSA, kem varla miklu í verk á meðan og svo erum við að koma aftur Suður því að ég ætla aðeins að kíkja til Boston á ráðstefnu í Svæfingum...
María Sara vex og dafnar, ekki mikið að stressa sig á látunum í foreldrunum, erum að reyna að venja hana á að fara snemma í rúmið, gengur svona ágætlega, því miður fengið eitthvað af þrjósku pabba síns í vöggugjöf! Finnst alveg skelfilega erfitt að fara í vinnuna á morgnana, sérstaklega dagana sem ég er á vöktum en þá sé ég hana og Guðbjörgu varla heilu sólarhringana...
Hlakka geðveikt til sumarsins, sumarfrí og fæðingarorlof í 3 mánuði, nýkomin suður, í nýju íbúðina og HM í fótbolta í þokkabót, alveg frábært... tel dagana...
2006/4/6 Komum Suður um helgina...Ætlum að kíkja aðeins Suður um helgina með litlu dömuna... orðið stutt í að við flytjum endanlega eða í byrjun júní. Íbúðin þokast alltaf í rétta átt, ætlum að taka ærlega til hendinni í þessari ferð m.a. mála og kannski parketleggja, sjáum til hvað við komumst langt... kannski of mikil bjartsýni
Annars nóg að gera, vorum að klára Ársþing skurð- og svæfingalækna hérna á Akureyri, gekk vel, frábært að hitta Gísla, Hannes og Fjalar ásamt fleirum!
María Sara alltaf jafn skemmtileg, stundum dálítið pirruð á pabba sínum, sem getur ekki beðið eftir að hún geti farið að leika meira við sig! Stundum sér maður samt sama stríðnisglampann í augunum á henni og í pabbanum... eins og að horfa á litla útgáfu af sjálfum sér...
Vá hvað það er gaman að vera orðinn "Pabbi"
2006/3/30 Á flakki...Búið að vera nóg að gera síðustu daga, skrapp í 3 daga á Austfirði að kenna læknum og hjúkrunarfræðingum sérhæfða endurlífgun fyrir Sjúkraflutningaskóla Íslands, hvernig eigi að stuða, gefa lyf o.s.frv. farinn að kannast aðeins við efnið, enda búinn að kenna þetta í 2 ár, finnst ég stundum hljóma eins og gömul plata... samkennari minn Lárus Pedersen (fyrsti paramedic Íslands!) studdi vel við bakið á mér... og hjálpaði mér við að hljóma ekki of monotone
Fyrsta sinn sem ég fór frá þeim mæðgum í svona langan tíma, ótrúlega erfitt! Guðbjörg stóð sig rosalega vel, ekkert svo viss um að sú litla hafi áttað sig á þessu, brosti bara út í eitt eins og venjulega þegar hún sá pabba sinn aftur...
Annars var þetta ferðalag mjög fínt, skemmtum okkur vel, Eskifjörður mjög fallegur bær, hafði aldrei komið þangað áður. Hulda Birna bekkjasystir mín úr lækninum sem er að vinna á Eskifirði núna, bjargað reyndar geðheilsu minni með því að bjóða okkur í frábæran heimatilbúinn mat, var orðinn ansi leiður á sjoppumatnum.
Svo snjóaði bara út í eitt, skil ekki hvernig ég slapp heim, enda var það rosalega tæpt, en gekk að lokum...
2006/3/17 María SaraNúna erum við loksins búin að finna nafn á litlu prinsessuna okkar.... María Sara
Alveg úti bláinn... nafn sem hún á alveg alein
Höfum annars haft það alveg rosalega gott undanfarið, ég hef ekki þurft að taka mikið af vöktum og er loksins eitthvað að koma til eftir flensuna... Litla skvísan blómstrar, vær og góð, farinn að babbla og babbla og alltaf stutt í brosið! Guðbjörg nýtur sín vel sem "heimavinnandi húsmóðir" á fullu að prófa nýjar uppskriftir og sinna þeirra litlu, kom m.a. með hana í heimsókn til pabbans í dag á Svæfingadeildina, sem fékk að monta sig af prinsessunni sinni!
2006/3/1 Aftur komin Norður!Blessuð öll !
Þá erum við komin aftur heim í Víðilundinn eftir 3 vikur í Reykjavík... þar sem verið var að sýna litlu dömuna!
Allt gengur eins og í sómanum, sú litla dafnar rosaleg vel, sefur og borðar vel, foreldrarnir ekkert smá ánægðir!
Notaði tímann í Reykjavík í að henda út úr íbúðinni okkar í Stigahlíð, sem er eiginilega bara fokheld í dag, en núna er fyrst tækifæri til að fara að byggja hana upp af einhverju viti, leggja gólfefni, flísaleggja og setja upp innréttingar.... ef allt gengur upp ættum við að geta flutt inní íbúðina strax og við flytjum Suður í lok maí.
Fullt af nýjum myndum af prinsessunni á Barnalandi.... kíkið endilega!
Byrjaði stax að vinna, fór of fljótt á stað, var ennþá að stíga uppúr flensu, gekk á einhverjum varaforða í 2 daga, í morgun sagði líkaminn hingað og ekki lengra, veikur heima í dag... 2006/2/2 Sofa, borða, kúka og pissa....Allt gengur eins og í sögu með litlu dömuna okkar heima, fórum með hana í vigtun í dag á fæðingardeildinni, dafnar samkvæmt áætlun... áfram alveg rosalega vær...
Týpískur dagur...
Sofa, borða, kúka, pissa... Sofa, borða, kúka, pissa... o.s.frv. alveg brjálað að gera hjá prinsessunni okkar
Magga tengdó er í heimsókn núna og mamma kemur í heimsókn um helgina... litla daman hefur verið að fá fullt af fallegum gjöfum hvaðanæva frá m.a. svakalega fallegt kort og gjöf frá Söndru Björk stóru frænku sinni og virkilega falleg prjónuð föt frá Systrunum í Hólminum, kemur sér vel þegar veturinn kemur loksins hingað Norður!
Guðbjörgu er alveg ótrúlega hraust miðað við að hún var í keisaraskurði fyrir tæpri viku, búið að fjarlægja öll hefti úr skurðinu, kemur bara mjög vel út, öll að hressast eftir að hafa farið ansi lágt í blóði eftir aðgerðina...
Fylgjumst líka spennt með ganginum hjá vinafólki okkar Ástu og Ingvari í Hafnarfirði, eignuðust myndarlegan dreng 2 dögum eftir að stúlkan okkar kom í heiminn, myndin af drengnum í Liverpool búningnum var alveg frábær og hvað gerðist næst var ennþá fyndnara, smá klósettslys! Þessi litlu kríli láta sko ekki bjóða sér hvað sem er, varla að ég þori að að setja mína strax í Chelsea búninginn sinn... gæti bara gefið skít í allt saman bókstaflega...
Ingvar... þú reyndir kannski annan búning næst, gæti gengið betur... áfram Chelsea!
Minni sérstaklega á þá skemmtilegu staðreynd að Liverpool og Chelsea leika næstu helgi !!!
Fótboltauppeldið byrjar aldrei of snemma... 2006/2/1 Prinsessan loksins komin heim!Stór dagur í gær, litla prinsessan okkar loksins komin heim, gekk rosalega vel... svakaleg vær, sváfum bara öll saman út í morgun, ekkert smá notalegt..
Guðbjörg var líka alveg svakalega fegin að komast loksins í sitt eigið umhverfi og ég var rosalega fegin að geta loksins hætt að sofa í sófanum í stofunni, gat bara ekki hugsað mér að sofa aleinn í hjónarúminu, alltof tómlegt!
Guðbjörg algjörg hetja, búin að vera mjög dugleg... í dag kemur svo Magga tengdó í heimsókn að kíkja á nýjasta fjölskyldumeðliminn...
Erum ekkert farin að spá í nafn, en köllum prinsessuna ýmist Gullbrá eða Smjatpatta, með rosaleg mikið ljóst hár og finnst alveg svakaleg gaman að smjatta á öllu sem hún nær í, sérstaklega puttunum, við erum að tala um smjatt sem heyrist á milli herbergja!
Dafnar vel, lætur sko alveg heyra í sér þegar hún er orðin svöng, þá er pabbinn alveg ómögulegur, en mamman í sérstöku uppáhaldi... 2006/1/28 Fyrsti sólarhringurinn...Allt gengið eins og í sögu, litla daman alveg órtrúlega þæg, tók strax brjóst og leyfði foreldrum sínum að lúra (sem reyndar bara gátu ekki sofið af spennu!)
Guðbjörg dálítið þreytt eftir allt saman, kannski ekki skrítið, hemóglóbínið hjá henni aðeins 82 í morgun, fannst hún óvenju föl... jafnar sig með tímanum - pabbinn tók þess vegna vaktina í seinnipartinn í dag og leyfði mömmunni að hvíla sig. Guðbjörg fer líklega ekki heim fyrr en á þriðjudag vegna þess að þetta endaði allt með keisara, fær þá bara lengri tíma og leiðsögn hjá ljósmæðrunum, en ég verð nú að viðurkenna að ég vildi helst bara fá þær heim strax...
Pabbinn tekinn í bleyju-kennslu í morgun, allt í lagi þar hjá dömunni, skilar vel af sér og pissaði sérstaklega á pabba sinn þegar hann var stíga sín fyrstu skref í bransanum...
Vá, hvað þetta er skemmtilegt... ! 2006/1/27 Yndisleg stúlka fædd !Fædd yndisleg lítil 13 marka stúlka á Akureyri, endaði með keisara, stúlku og móður heilsast vel, en nýji pabbinn er ennþá að jafna sig
Þetta er bara besta tilfinning í heimi, geðveikt stoltur!
Má ekki vera að þessu í bili, get ekki slitið mig frá mæðgunum... set myndir inní albúmið!
2006/1/25 Stóri dagurinn að nálgast?Vorum í skoðun í dag, gengin 3 daga framyfir... frekar róleg samt, en allt í einu breytist allt!
Læknarnir okkar nefnilega að spá í að "starta" fæðingunni á morgun - smá áfall - föttuðum allt í einu að við erum að fara að eignast barn í alvörunni! Höfum samt haft 9 mánuði til að átta okkur....
Barnarúmið sótt niður í geymslu í kvöld og helstu nauðsynjum pakkað í töskur... ALLT TILBÚIÐ...
Guðbjörg mikið að spá í að hætta við allt saman, heyrði öskrin í einni mömmunni yfir alla deildina í kvöld, greinilega eintóm gleði þessar fæðingar!
VERÐUM FLJÓTT Í BANDI...
2006/1/16 Farið að klæja í fingurnar...Núna er sko farið að styttast í að barnið komi í heiminn....
Reyndar alveg frábært "sketch" hjá Strákunum í kvöld.... Nýr pabbi mætir með lítið barn á fæðingardeildina og segist vera að skila barninu, þau hjónin séu alveg ósofin og hafi ekki komist í bíó í 2 mánuði... Konan á fæðingardeildinni alveg brjáluð, segir að þetta sé ekki Kattholt og ekki sé bara hægt að skila börnum tilbaka eftir það þau koma í heiminn... Pabbinn mætir svo uppí Kattholt, búinn að teikna veiðihár framan í krakkann og setja skott á hann, gekk samt ekki að koma krakkanum út, pabbinn svaklega fúll... alveg frábært atriði...
Og á sama tíma get ég varla beðið eftir að komast Suður til að fara að vinna meira í íbúðinni okkar í Stigahlíð...
Langar mikið til að allt sé komið í gang og jafnvel tilbúið þegar við flytjum til Reykjavíkur í júní með litla barnið!
Útsölur allsstaðar og virkilega erfitt að sitja á sér...
Næst á dagskrá, spasla veggi, pússa hurðir og dyrakarma, rífa upp lista, gera breytingar á eldhúsinnréttingu.... 2006/1/15 39 vikur!Í dag er Guðbjörg gengin 39 vikur og bara vika þangað til hún á að eiga.... svakaleg spenna!
Allt á fleygiferð í bumbunni, greinilega líka spenna þar að fá að hitta mömmuna og pabbann
Annars erum við á efastiginu... "hvað erum við búin að koma okkur útí" "verður ábyggilega allt í lagi..." o.s.frv.
Annars hefur öll meðfgangan gengið alveg ótrúlega vel, alveg frá upphafi, sérstaklega þar sem þetta átti fyrst að vera bara æfing en varð svo bara að alvöru alveg strax!
Persónulega finnst mér Guðbjörg aldrei hafa verið flottari, þannig að ég mun gera mitt besta til þess að litla barnið sem er á leiðinni núna verði ekki einbirni alltof lengi...
Átti að vera hættur á flugvöktum núna, en alveg sértstakt ástand hérna fyrir Norðan vegna Læknadaga, einfaldlega enginn aukamannskapur, þurfti að fara í 2 flug um helgina, en var ekki einu sinni á vakt!
|
|
|