Theódór's profileHeimasíða Tedda og Guðbj...PhotosBlogLists Tools Help

Theódór Sigurðsson

Occupation
Interests
Alltaf í vinnunni... ! Carpe diem
1/11/2008

Komin til Svíþjóðar

Gleðilegt nýtt ár!
 
Jæja, núna loksins kominn með almennilega nettengingu, tók bara 5 vikur hjá Svenson, hægt og rólega að komast inní sænska kerfið!
 
Guðbjörg og María Sara sáttar við nýtt líf í nýju landi, meðgangan gengur vel, áætlaður keisari í lok febrúar, María Sara byrjuð í leikskólanum. Kunnum mjög vel við okkur í nýja húsinu, enda með bestu nágranna í heim þ.e. Kidda/Níní & fjölskyldu, sem tóku frábærlega á móti okkur!
 
Ég byrjaði að vinna í vikunnu, kann mjög vel við mig, allir rosalega almennilegir og virðast skilja "sænskuna" mína, sem ég bara trúi varla Wink 
Háskólasjúkrahúsið hérna í Lundi er mjög flott, auðvitað allt miklu meira og stærra en heima á Fróni, strax búinn að læra fullt!
 
Verður ekki lengra í bili, kíkið endilega á síðuna hennar Maríu Söru til að sjá nýjar myndir....
 
Kveðja
 
Teddi
 
 
1/2/2007

Gleðilegt nýtt ár...

Blessuð öll og gleðilegt nýtt ár...
 
Verið frekar latur síðustu mánuði við að blogga, finnst MSN ekki ganga alveg nógu vel, búinn að gera margar tilraunir sem yfirleitt klikka!
 
Hafið þið átt í vandræðum?
 
Annars brjálað að gera í vinnunni, svo gerir maður varla annað en skanna blöðin m.t.t. slysa þegar maður er í fríi, til að átta sig á hvernig ástandið verði svo þegar maður kemur aftur í vinnuna, sjúkt ekki satt!!!  Talandi um að vera kominn með vinnuna á heilann...
 
María Sara blómastrar, búin að fara til Þýskalands og Danmerkur, byrjuð að ganga um allt með stuðningi og bablar útí eitt, alltaf síbrosandi!
 
Guðbjörg er að byrja að vinna á BMT við Hringbraut, rosaspennt...  
 
Lofa að blogga meira, ef þetta gegnur núna....
8/2/2006

Á leiðinni í ævintýralandið...

Afsakið hvað það er langt síðan ég hef bloggað....     ég er bara alltof upptekinn við að gera ekki neitt í sumarfríinu
 
Loksins frábært veður hérna...    
 
Erum annars öll á leiðinni til útlanda, ætlum til Þýskalands í miðaldabæinn Rothenburg, auk þess sem við ætlum að tékka aðeins á Munchen!  Var þarna í gamla daga, í þýskuskóla, lærið ekki mikla þýsku, en lærði hinsvegar loksins að drekka bjór og hef gert talsvert af því síðan
 
Rosalega flottur bær, alveg eins og að ferðast með tímavél að fara þangað, yfirleitt frábært veður, róleg og rómantísk stemning!
 
María Sara alltaf að læra nýja hluti, alveg að byrja að skríða að ég held, eins gott að klára ferðalagið sem allra fyrst, áður en hún fer á stað,  nokkuð ofvirk og mjög forvitin, skrautlegir mánuðir framundan án efa.... 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
7/17/2006

Netleysi

Blessuð öll og afsakið hvað maður hefur verið latur við að blogga...   vorum loksins að ganga frá því að fá símann tengdan í íbúðina, netið ætti að komast fljótlega í gang...
 
Annars búið að vera nóg um að vera...
 
MR-reunion...  mikið fjör, rosalega gaman að hitta alla gömlu félagana...
 
Steggjun Davíðs og brúðkaup í kjölfarið...  ennþá meira fjör, dansað framá nótt
 
Steggjun Hannesar, brúðkaup eftir tvær vikur, ennþá með marbletti eftir magnaðan paintball dag...
 
Flutt inní íbúðina, loksins, geðveit notalegt, erum að koma okkur fyrir í rólegheitum, loksins eins og maður sé fluttur í bæinn...
 
María Sara, bara stækkar og stækkar, næstum hætt að passa í vagninn sinn, þurfum að fara að fá grind utan um leikteppið, ansi virk, finnst voðalega gaman að naga nýja stofuborðið, held að rólegu dagarnir með henni séu á enda!  :-)
 
Set fljótlega inn myndir kveðja...   Teddi
6/17/2006

María Sara skírð í dag

Frábær dagur í dag....   María Sara loksins skírð....  Fengum frábærar móttökur hjá Systrunum í Stykkishólmi en þar fór athöfnin fram að viðstöddum nánustu fjölskyldu og séra Jakob skírði.   Mjög hátíðlegt en afslappað andrúmsloft...  sú litla stóð sig eins og hetja...   og virtist bara mjög sátt við alla athyglina...  sló alveg í gegn!
 
Á mjög miklar rætur í Stykkishómi og hjá systrunum, var þar í pössun sem barn og vann á spítalanum í 3 sumur
 
6/8/2006

Hótel Tengdamamma

Já, þá erum við bara flutt Suður eftir 3 ár á Akureyri...  ekki alveg búinn að ná þessu ennþá...  hvað þá að vera í sumarfríi og fæðingarorlofi þar til í september.  Ekki alveg þessi týpa sem kann að vera í fríi og gera mest lítið...
 
Íbúðin ennþá óíbúðarhæf, en erum samt langt frá því að vera á götunni, búum nefnilega hjá Tengdó 2 hæðum fyrir ofan íbúðina okkar.  Alltaf gott að búa á Hótel Tengdamömmu...    Svo má ekki gleyma því að Hótel Mamma er bara nánast í næstu götu...    ómetanlegt uppá litlu dömuna á daginn sem er með tryggða pössun á meðan mamman og pabbinn eyðileggja í sér lungun með 40 ára gömlu ryki og drullu !   Vá hvað ég verð glaður þegar þetta verður allt búið, stefnan sett á 20.júní...
 
Eitthvað gekk mér samt illa að koma mér í gang á daginn niðri í íbúð, áttaði mig svo á því að auðvitað vantaði bara Sýn, þannig að ef þið eruð án HM eða bara fáið ekki að horfa á keppnina heima hjá ykkur af því að Skjárinn tók uppá einhverjum Stelpumánuði öll kvöld í júní bara til að valda sundrung á Íslenskum heimilum, ÞÁ ERUÐ ÞIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN!
 
Hverjum dettur í hug að dusta rykið af þáttum eins og Berverly Hills "nr.eitthvað" og Melrose Place
 
Nokkuð tryggt að ég verð þar öllum stundum að "vinna" í íbúðinni....  næstu vikur!
5/28/2006

Síðasta helgin á Akureyri

Jæja, nú er bara komið að þessu...   allt komið í kassa, keyrum Suður á þriðjudaginn!
 
Guðbjörg í stresskasti með hálsbólgu, ekki góð blanda   Nei annars staðið sig rosalega vel í þessu öllu, ég alltaf bundinn í vinnu, á ferð og flugi, ekkert smámikið sem ég hef verið að reyna að klára á FSA, verð bara að gera mitt besta...
 
Íbúðin þokast í rétta átt, verið að klára rafmagnið núna...   einhver seinkun á að við fáum parketið, vonum bara að þetta klárist sem fyrst í sumar, helst í júní...
 
María Sara algjör perla, hefur ekki hugmynd um öll lætin í kringum sig, bara brosir út í heiminn og kominn rosalega fyndinn hlátur...   Mamma og Pabbi í heimsókn hérna fyrir Norða núna, sú litla alveg búin að bræða þau.. 
María Sara fékk fullt af flottum fötum frá pabba sínum sem er nýkominn frá Boston, hún fékk líka stóra leikfangakisu sem hún er ekki alveg búinn að fatta hvað hún á að gera við, sjá mynd - svipurinn segir allt!
 
 
Skírn  
Photo 1 of 6